Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. október 2017 19:58
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Holland: Ögmundur fékk á sig eitt í jafntefli
Ögmundur Kristinsson.
Ögmundur Kristinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Excelsior 1-1 Sparta Rotterdam
1-0 Milan Massop ('54)
1-1 Craig Goodwin ('86)

Excelsior og Sparta Rotterdam skildu jöfn í leik sem var hluti af 9. umferð efstu deildar hollenska boltans í dag.

Markvörðurinn Ögmundur Kristinsson leikur með Excelsior.

Það voru heimamenn sem náðu forystunni í leiknum á 54. mínútu, þá kom Milan Massop boltanum í netið.

Þegar fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma tókst Craig Goodwin að koma boltanum fram hjá Ögmundi í markinu og jafnaði í 1-1, sem var niðurstaðan í þessum leik.

Excelsior er með 11 stig í 11. sæti en Sparta er hins vegar á botni deildarinnar með 6 stig.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner