Scott McTominay hefur fengið tækifæri með aðalliði Manchester United undir stjórn Jose Mourinho.
Alex McLeish var nýlega ráðinn þjálfari skoska landsliðsins og vill hann fá miðjumanninn til að spila fyrir Skotland.
Alex McLeish var nýlega ráðinn þjálfari skoska landsliðsins og vill hann fá miðjumanninn til að spila fyrir Skotland.
McLeish vill leyfa McTominay að spila æfingaleiki næsta mánaðar gegn Kosta Ríka og Ungverjalandi.
McTominay, 21 árs, er að brjóta sér leið inn í byrjunarliðið eftir góðar frammistöður í bikar- og meistaradeildarleikjum.
Hann þótti spila góðar 90 mínútur í markalausu jafntefli gegn Sevilla í vikunni og átti góða leiki gegn Huddersfield.
Athugasemdir