Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
Sigurvin: Kredit á strákana að finna þetta afl
Chris Brazell: Við voru mikið með boltann en gerðum ekkert með hann
Siggi Höskulds svekktur: Fókusleysi á mikilvægum augnablikum
Magnús Már: Maður hefur séð ýmislegt í boltanum en ég hef sjaldan séð þetta áður
Gunnar Heiðar: Búnir að æfa í sex mánuði fyrir þennan leik
Vigfús Arnar: Var eins og spennustigið væri eitthvað skrítið hjá okkur
Aron Snær: Ætluðum að keyra á þetta og það verður held ég bara okkar mottó
Haraldur Freyr: Mótið tapast ekki eða vinnst í fyrstu umferð
Aníta Dögg bjargaði málunum: Ég lenti klukkan sex í morgun
Árni Freyr hæstánægður eftir sigur ÍR - „Vona að þeir bæti í"
Staða sem á ekki að koma upp - „Átti að spila þangað til klukkan 23:30 í gærkvöldi"
„Við vitum í hverju við erum góðar“
Búin að skora í öllum leikjunum til þessa - „Mín upprunalega staða"
Hugur allra hjá Andreu Marý - „Óþægilegt í alla staði"
„Það var ráðist á hana inn í okkar vítateig“
Skyndiákvörðun að taka skóna af hillunni - „Hvernig gerðist þetta?“
Þriðja tapið í þriðja leiknum - „Óásættanlegt“
Mætti dóttur sinni í kvöld - „Þetta var mjög óþægilegt“
Sandra María óstöðvandi - „Þetta er galin tölfræði"
Slæmur dagur Víkings - „Vilt þú fara í markið?"
banner
   fim 05. apríl 2018 14:00
Elvar Geir Magnússon
Króatíu
Fanndís: Gengur vægast sagt hræðilega
Icelandair
Fanndís er vel gíruð fyrir landsleikinn.
Fanndís er vel gíruð fyrir landsleikinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvennalandsliðið mætir Slóveníu í bænum Lendava á morgun klukkan 15 að íslenskum tíma. Fanndís Friðriksdóttir segist mjög vel gíruð í þetta verkefni.

„Við komum hingað til að byrja á því að ná í þrjú stig og svo önnur þrjú í næstu viku," segir Fanndís en eftir verkefnið í Slóveníu heldur íslenski hópurinn til Færeyja.

Slóvenía og Færeyjar eru neðstu lið riðilsins í undankeppni HM og verður Ísland að vinna báða leikina til að berjast um það markmið að komast í lokakeppnina.

„Það er oft erfitt að spila á móti liði þar sem maður er fyrirfram sterkari. Slóvenska liðið getur beitt brögðum, við höfum tapað áður fyrir þeim. Við erum bara með fullan fókus á okkur sjálfum."

Fanndís spilar með Marseille í frönsku kvennadeildinni en liðið vermir neðsta sæti deildarinnar.

„Það gengur vægast sagt hræðilega. Það er hrikalega gott að koma hingað og fá að gleyma því aðeins," segir Fanndís en í viðtalinu, sem sjá má hér að ofan, ræðir hún nánar um Marseille og franskan kvennabolta.
Athugasemdir
banner