Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 27. maí 2018 22:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldo við stuðningsmenn: Sjáumst á næsta ári
Ronaldo virðist ekki vera á förum.
Ronaldo virðist ekki vera á förum.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo vakti furðu margra þegar hann talaði eins og hann væri á förum frá Real Madrid eftir sigur liðsins í Meistaradeildinni í gær. „Á næstu dögum verður framtíð mín komin á hreint. Það er búið að vera mjög gaman að spila fyrir Real Madrid," sagði Portúgalinn.

Eftir það sagði hann að hann hefði verið „hreinskilinn".

Margir hafa velt því fyrir sér hvað hann sé að meina með þessum ummælum, en ætli það komist ekki á hreint eftir viku, en þá ætlar Ronaldo að segja betur frá.

Sumir eru á því að Ronaldo sé á eftir betri samningi, en miðað við það sem hann hafði að segja er Real fagnaði sínum þriðja Meistaradeildartitli með sínu fólki í Madríd í dag, þá er hann ekki á förum frá félaginu.

„Takk allir, sjáumst á næsta ári," sagði Ronaldo við stuðningsmenn í kvöld.



Athugasemdir
banner
banner
banner