Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 01. júlí 2015 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
HM kvenna í dag: Japan mætir Englandi í undanúrslitum
Japan vann HM kvenna, sem var haldið í Þýskalandi fyrir fjórum árum.
Japan vann HM kvenna, sem var haldið í Þýskalandi fyrir fjórum árum.
Mynd: Getty Images
Það er einn leikur á dagskrá í kvöld og er það stórleikur kvennalandsliðs Japans gegn því enska.

Liðin mætast á undanúrslitastigi keppninnar og keppast um að komast í úrslitaleikinn gegn Bandaríkjunum, sem lögðu Þýskaland af velli í nótt með tveimur mörkum gegn engu.

Japan er ríkjandi heimsmeistari kvenna og þurfti að fara í gegnum landslið Hollendinga og Ástrala til að komast alla leið í undanúrslitin á meðan Englendingar slógu út Norðmenn og heimamenn í Kanada.

Leikur kvöldsins:
23:00 Japan - England
Athugasemdir
banner
banner
banner