Angel Di Maria, leikmaður Manchester United, mun á næsta sólarhring ganga undir læknisskoðun hjá franska stórliðinu Paris St-Germain.
Di Maria var keyptur til United á 59,7 milljónir punda síðasta sumar. Eftir lofandi byrjun stóð hann ekki undir væntingum og spilaði fáa byrjunarliðsleiki seinni hluta tímabilsins.
Di Maria mun hitta forráðamenn PSG í Doha í dag en samkvæmt heimildum BBC er kaupverðið 46 milljónir punda.
Hann var ekki með United í æfingaferðinni í Bandaríkjunum.
Athugasemdir