Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 02. september 2014 19:00
Alexander Freyr Tamimi
Azpilicueta fær nýjan fimm ára samning hjá Chelsea
Azpilicueta verður í mörg ár til viðbótar á Brúnni.
Azpilicueta verður í mörg ár til viðbótar á Brúnni.
Mynd: Getty Images
Cesar Azpilicueta, bakvörður Chelsea, hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið.

Þessi 25 ára gamli spænski landsliðsmaður kom til Chelsea frá Marseille árið 2012 og var alger lykilmaður á síðustu leiktíð.

Félagið sagðist á heimasíðu sinni vera ánægt með að halda leikmanninum, sem var hluti af virkilega öflugri vörn sem fékk einungis á sig 27 mörk í 38 deildarleikjum á síðustu leiktíð.

Chelsea hefur byrjað tímabilið af krafti og unnið alla þrjá deildarleiki sína. Hefur Azpilicueta spilað hverja mínútu til þessa.
Athugasemdir
banner
banner
banner