Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 03. júlí 2015 12:59
Eyþór Ernir Oddsson
Heimild: Heimasíða Chelsea FC 
Falcao á láni til Chelsea (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Chelsea staðfestu í dag á heimasíðu sinni að Radamel Falcao, leikmaður Monaco sé á leið til félagsins á láni.

Þessi kólumbíski landsliðsmaður gengur til liðs við Englandsmeistarana en hann var í herbúðum Manchester United á seinustu leiktíð eins og flestir vita, en þar átti hann miður góða tíma.

„Ég er mjög ánægður með að fara til Chelsea og get ekki beðið eftir að byrja að æfa og hjálpa liðinu með það markmið að endurheima titilinn og verða sigursælir í Evrópu," sagði Falcao.

Falcao hafði verið einn heitasti framherji heims áður en að tíma hans hjá Manchester United kom til. Hann var skæður markaskorari hjá Porto áður en hann gekk til liðs við Atletico Madrid og blómstraði áður en hann var keyptur til Monaco árið 2013, en þar stóð hann sig einnig vel þar til hann meiddist illa.

Hjá Chelsea hittir hann fyrrum liðsfélaga sína hjá Atletico Madrid, þá Thibaut Courtois, Filipe Luis og Diego Costa, auk samherja síns hjá landsliðinu, Juan Cuadrado.
Athugasemdir
banner
banner