Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 04. maí 2015 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Skoraði úr tveimur hornspyrnum í landsleik
Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Nguyen Thi Tuyet Dung skoraði tvisvar úr hornspyrnu í landsleik þar sem Víetnam lagði Malasíu af velli, 7-0.

Tuyet Dung skoraði fyrst beint úr hornspyrnu á hægri kanti með vinstri fætinum og svo beint úr hornspyrnu á vinstri kanti með hægri fætinum, sem er vægast sagt magnað afrek.

Tuyet Dung er talinn besti leikmaður Víetnam í kvennaboltanum og vann Gullknöttinn fyrir síðustu leiktíð.

Það er þó auðséð að markvörður Malasíu hefði getað gert mun betur í báðum mörkunum.


Athugasemdir
banner
banner
banner