Fimmta árið í röð stendur Fótbolti.net fyrir Draumaliðsleik í Pepsi-deild karla. Að þessu sinni er Eyjabiti aðalstyrktaraðili deildarinnar sem rekin er af Fóbolta.net í samstarfi við Íslenskan toppfótbolta eins og síðustu ár.
Innkoma Eyjabita gerir Fótbolta.net kleift að halda úti Draumaliðsdeidlinni í ár. Deildin hefst í 2. umferð í ár og stig leikmanna telja frá og með þeirri umferð .
Innkoma Eyjabita gerir Fótbolta.net kleift að halda úti Draumaliðsdeidlinni í ár. Deildin hefst í 2. umferð í ár og stig leikmanna telja frá og með þeirri umferð .
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Hægt er að kaupa og selja leikmenn ótakmarkað og gera breytingar á liðinu áður en leikmannaglugginn lokar klukkan 15:00 á laugardag, klukkutíma fyrir fyrsta leik í 2. umferðinni.
Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
Athugið að ekki hægt er að nota sama notendanafn og í fyrra. Fólk þarf að skrá sig upp á nýtt í ár.
Hægt er að skrá lið til leiks og gera breytingar á liðinu sínu til klukkan 15:00 á laugardag!
Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Eyjabiti er aðalstyrktaraðili leiksins í ár. Eyjabiti er harðfiskvinnsla sem er staðsett á Grenivík. Verðlaunahafar í Draumaliðsdeildinni í ár fá harðfisk í verðlaun, en ekki hvað!
Athugasemdir