Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 04. desember 2017 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Aníta Dögg og Hafdís Erla framlengja við FH
Aníta er aðeins 17 ára gömul.
Aníta er aðeins 17 ára gömul.
Mynd: FH
Aníta Dögg Guðmundsdóttir og Hafdís Erla Gunnarsdóttir eru búnar að endurnýja samninga sína við FH.

Báðar eru þær gríðarlega efnilegar og eiga leiki að baki með yngri landsliðum Íslands. Aníta er fædd árið 2000 og Hafdís 1997. Aníta á 8 meistaraflokksleiki að baki og Hafdís 24.

„Það er ánægjuefni fyrir okkur FH-inga að þessir tveir efnilegu markmenn skuli vera búnir að skrifa undir nýja samninga við félagið," stendur í fréttatilkynningu frá kvennaráði FH.

Markverðirnir tveir spiluðu ekki fyrir FH í sumar, heldur komu þær síðast við sögu 2015. Aníta hefur ekki spilað síðan þá en Hafdís lék 8 leiki fyrir Aftureldingu í fyrra.

FH átti fínt tímabil í Pepsi-deild kvenna í sumar og endaði í 6. sæti, með 23 stig úr 18 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner