Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 05. maí 2015 16:34
Magnús Már Einarsson
Arnór Smára og Hulk saman frammi í liði vikunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Smárason, framherji Torpedo Moskvu, er í liði vikunnar í rússnesku úrvalsdeildinni.

Arnór skoraði jöfnunarmark Torpedo Moskvu á 89. mínútu í 2-2 jafn­tefli gegn Ru­bin Kaz­an í rúss­nesku úr­vals­deild­inni í fyrradag.

Hann er ekki í slæmum félagsskap í fremstu víglínu í liði vikunnar því með honum frammi er Hulk framherji Zenit St. Pétursborg.

Arnór hefur spilað vel síðan hann kom til Torpedo Moskvu frá Helsingborg á dögunum en þetta er í annað skipti sem hann er í úrvalsliði vikunnar í Rússlandi.
Athugasemdir
banner
banner