Heimild: Mirror
Forráðamenn Southampton hafa hafið viðræður við umboðsmann Morgan Schneiderlin um að framlengja samning leikmannsins.
Þessi 25 ára gamli Frakki á tvö ár eftir af núgildandi samningi sínum, en hann hefur verið einn besti leikmaður liðsins undanfarin tvö ár.
Lið eins og Arsneal og Manchester United eru sögð hafa áhuga á að fá leikmanninn til sín og er hann metinn á 25 milljónir punda.
Forráðamenn Southampton eru sagðir reiðubúnir til að gera Schneiderlin að launahæsta leikmanni liðsins og munu bjóða honum 60.000 pund í vikulaun.
Athugasemdir