Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 06. maí 2015 20:46
Ívan Guðjón Baldursson
Vine-myndband: Messi rotaði Boateng
Mynd: Getty Images
Lionel Messi átti magnaða spretti í leik kvöldsins milli Barcelona og Bayern München.

Argentínski snillingurinn skoraði tvö og lagði eitt upp í 3-0 sigri og það sem hefur fangað mestu athyglina er hversu illa hann fór með heimsmeistarann Jerome Boateng í seinna marki sínu.

Messi sólaði Boateng svo illa að það leit út fyrir að hann hafi verið rotaður þegar hann datt kylliflatur í jörðina.

Myndband af töktum Messi má sjá hér fyrir neðan, þar sem hann lék á Boateng og vippaði boltanum svo yfir hinn stóra Neuer með hægri fætinum, en Messi er örvfættur og hefur verið gagnrýndur fyrir að vera lélegur með hægri.






Athugasemdir
banner
banner