Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. október 2015 10:28
Magnús Már Einarsson
Klopp skrifar undir þriggja ára samning í dag
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp verður ráðinn stjóri Liverpool síðar í dag samkvæmt fréttum frá Englandi.

Búist er við að Klopp skrifi undir þriggja ára samning við Liverpool síðdegis.

Hann tekur við Liverpool af Brendan Rodgers sem var rekinn um síðustu helgi.

Hinn 48 ára gamli Klopp var síðast þjálfari Borussia Dortmund en hann tók sér frí frá fótbolta eftir að hann hætti þar.

Klopp vonast til að fá Zeljko Buvac og Peter Krawietz með sér í þjálfaralið Liverpool en þeir störfuðu með honum hjá Dortmund.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner