Jesus gæti farið frá Arsenal - Möguleg stjóraskipti hjá Man Utd og Bayern - Dortmund vill halda Sancho
banner
   fös 08. desember 2017 12:10
Elvar Geir Magnússon
Klopp: Gylfi fæddur til að taka hágæða spyrnur
Klopp er hræddur við spyrnur Gylfa.
Klopp er hræddur við spyrnur Gylfa.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, er spenntur fyrir grannaslagnum gegn Everton sem verður á sunnudag.

Á fréttamannafundi í dag sagði Klopp að Everton væri með mun meiri gæði í sínu liði en taflan sýnir.

„Þetta er mjög sérsakur leikur. Sam Allardyce er einn reynslumesti stjóri deildarinnar. Ég er bara búinn að vera hérna í tvö ár og hef mætt honum þegar hann stýrir þremur mismunandi félögum," segir Klopp.

„Þú veist hvað þú munt fá en það gerir hlutina ekki auðveldari. Það er erfitt að spila gegn öllum liðum Allardyce en við erum á góðu skriði og þurfum að læra af mistökum okkar."

„Ég býst við vel skipulögðum mótherjum og hágæða föstum leikatriðum. Sigurðsson er fæddur til að skila þeim. Það verður mikil barátta um annan bolta. Við þurfum að vera búnir undir hörku."

Gylfi Þór Sigurðsson kann vel við sig á Anfield en hann skoraði sigurmark Swansea gegn Liverpool á vellinum á síðasta tímabili.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 26 5 5 88 28 +60 83
2 Man City 35 25 7 3 87 33 +54 82
3 Liverpool 36 23 9 4 81 38 +43 78
4 Aston Villa 36 20 7 9 73 53 +20 67
5 Tottenham 35 18 6 11 69 58 +11 60
6 Newcastle 35 17 5 13 78 56 +22 56
7 Chelsea 35 15 9 11 70 59 +11 54
8 Man Utd 35 16 6 13 52 55 -3 54
9 West Ham 36 13 10 13 56 70 -14 49
10 Bournemouth 36 13 9 14 52 63 -11 48
11 Brighton 35 12 11 12 53 57 -4 47
12 Wolves 36 13 7 16 49 60 -11 46
13 Fulham 36 12 8 16 51 55 -4 44
14 Crystal Palace 36 11 10 15 49 57 -8 43
15 Everton 36 12 9 15 38 49 -11 37
16 Brentford 36 9 9 18 52 60 -8 36
17 Nott. Forest 36 8 9 19 45 63 -18 29
18 Luton 36 6 8 22 49 78 -29 26
19 Burnley 36 5 9 22 39 74 -35 24
20 Sheffield Utd 36 3 7 26 35 100 -65 16
Athugasemdir
banner
banner