Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 10. febrúar 2016 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Marcelo fór úr axlarlið
Marcelo er meiddur.
Marcelo er meiddur.
Mynd: Getty Images
Marcelo, vinstri bakvörður Real Madrid, verður mögulega fjarri góðu gamni næstu vikur eftir að hafa farið úr axlarlið.

Brasilíumaðurinn hefur verið lykilmaður í liði Real Madrid um margra ára skeið en meiddist illa í 2-1 sigrinum gegn Granada á dögunum.

Afar líklegt er að Marcelo missi af fyrri leik Real Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Roma á Stadio Olimpico þann 17. febrúar.

Real Madrid sagði þó í yfirlýsingu að félagið vissi enn ekki hve lengi hann yrði frá. Spænskir fjölmiðlar tala um allt að þrjár vikur.
Athugasemdir
banner
banner