Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 12. október 2015 23:15
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Lestarteinar í stað hlaupabrautar
Mynd: Twitter
Vallaraðstæður hjá slóvakíska áhugamannaliðinu TJ Tatran Cierny Balog eru ekki sem bestar.

Margir myndu kalla það plús að það sé engin hlaupabraut á milli vallarins og stúkunnar en það er eflaust mínus að í stað hlaupabrautarinnar eru lestarteinar.

Ekki nóg með að það séu lestarteinar, heldur keyra gufulestir reglulega framhjá heimavelli TJ Tatran eins og má sjá á myndbandinu hér fyrir neðan.

Reykmökkurinn sem lestin gefur frá sér getur ekki verið ýkja þægilegur fyrir leikmenn og áhorfendur, sem gera þó gott úr slæmri stöðu og fá lestarstjórann til að heilsa sér.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner