Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   þri 13. október 2015 22:09
Alexander Freyr Tamimi
skrifar frá Konya
Birkir Már: Kemst nálægt því í Stokkhólmi
Icelandair
Birkir Már Sævarsson.
Birkir Már Sævarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður íslenska landsliðsins, var svekktur með að missa niður leikinn gegn Tyrklandi í 1-0 tap undir lokin í kvöld.

„Þetta var mjög svekkjandi. Í fyrsta lagi fannst okkur þetta ekki vera aukaspyrna og í öðru lagi var þetta frábær aukaspyrna. Þeir taka smá sénsa eftir að þeir missa mann út af og frétta að þeir geta farið beint áfram, en þeir skapa svosum ekki neitt og ef við hefðum ekki fengið þetta mark á okkur hefðum við kannski getað laumað inn einu" sagði Birkir Már við Fótbolta.net.

Hann viðurkennir að hann hafi notið stemningarinnar á Torku Arena.

„Þetta var alveg frábært, þetta voru þvílík læti og maður er enn með pínu píp í eyrunum. Þetta kemst nálægt því í Stokkhólmi þegar við erum að spila nágrannaslagina en það eru aðeins meiri læti hérna," sagði Birkir Már.

„Auðvitað hefðum við viljað enda þetta betur, við höfum ekki unnið leik síðustu þrjá leiki og hefðum viljað enda miklu betur, en auðvitað erum við mjög glaðir að vera komnir til Frakklands."
Athugasemdir
banner
banner
banner