Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   mán 14. nóvember 2016 14:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Hörður Björgvin: Í heildina flottur leikur hjá mér
Icelandair
Hörður Björgvin á æfingu í dag.
Hörður Björgvin á æfingu í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
„Auðvitað var erfitt að tapa á móti Króötum þegar þeir voru ekki upp á sitt besta. Við gátum skorað mörg mörk í fyrri hálfleik og vorum betri en þeir. Mér fannst þeir ekki geta neitt þá en aðstæður voru ekki góðar og það var erfitt að spila fótbolta á þessum velli," sagði Hörður Björgvin Magnússon við Fótbolta.net.

Hörður spilaði allan leikinn í vinstri bakverðinum er Ísland tapaði á móti Króatíu í undankeppni HM á laugardag. Hörður var gagnrýndur fyrir frammistöðu sína í leiknum.

„Varnarlega fannst mér ég flottur. Ég veit sjálfur að sendingarnar voru ekki góðar en þegar menn horfa á völlinn og spila á þessu þá fatta menn hvernig er að senda á þessu. Þetta voru holur og drulla út um allt. Auðvitað á ég að gera betur með það en í heildina flottur leikur hjá mér fannst mér."

Hörður hefur staðið sig vel sem miðvörður hjá Bristol City en í landsliðinu hefur hann leikið í vinstri bakverði.

„Þetta er öðruvísi staða og meiri hlaup. Þetta er varnarvinna og þegar ég fæ tækifærið þarf ég að sýna góða varnarmönnum. Ég var að eiga við bestu kantmenn í heiminum í leiknum og mér fannst ég stoppa þá vel. Ég get ennþá spilað vinstri bakvörðinn meðan ég er svona ungur."

Hörður vann marga skallabolta í leiknum í Zagreb en hann var ekki sáttur við dómgæsluna í leiknum.

„Þeir unnu ekki einn skallabolta á móti mér, ég vann þá alla. Þeir foru mikið að reyna að fiska á mann og dómarinn gaf þeim mikið sem hjálpaði þeim," sagði Hörður.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner