Fjarðabyggð 2 - 0 Huginn
1-0 Mate Coric ('40)
2-0 Nikola Kristinn Stojanovic ('54)
1-0 Mate Coric ('40)
2-0 Nikola Kristinn Stojanovic ('54)
Lokaleikurinn í sjöundu umferð 2. deildar karla fór fram í kvöld þegar Fjarðabyggð og Huginn áttust við.
Huginn var án stiga fyrir leikinn í kvöld en fyrstu stigin komu ekki á Eskjuvelli á þessu föstudagskvöldi.
Það dró fyrst til tíðinda á 40. mínútu þegar Mate Coric skoraði og var staðan 1-0 í hálfleik fyrir Fjarðabyggð. Í upphafi seinni hálfleiks bætti Nikola Kristinn Stjojanovic við öðru marki og þar við sat. Huginn náði ekki að komast inn í leikinn.
Lokatölur 2-0 fyrir Fjarðabyggð sem virðist ætla að blanda sér í efri hluta deildarinnar. Fjarðabyggð er í fimmta sæti með 13 stig en Huginn er á botni deildarinnar án stiga.
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir