Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 15. október 2017 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gabriel Jesus: Ég lifi fyrir mörk
Mynd: Getty Images
Ef það er eitthvað sem Brasilíumaðurinn Gabriel Jesus elskar þá er það að skora mörk. Hann elskar líka bakkelsi, en hann hefur líklega meira gaman af því að skora mörk en háma í sig bakkelsi.

Jesus skoraði tvö mörk í 7-2 sigri City á Stoke í gær, en hann hefur skorað 14 mörk í 21 leik síðan hann kom til Man City í janúar.

Í viðtali eftir leikinn gegn Stoke í gær sagði hann: „Ég lifi fyrir mörk og ég vil skora eins mörg mörk og ég mögulega get."

„Það er gaman að skora með brasilíska landsliðinu, en ég elska það að skora fyrir Manchester City."

„Ég læri mikið af Sergio Aguero á hverjum degi, ég læri samt ekki eingöngu af honum, ég læri af öllu liðinu. Við lærum allir af hverjum öðrum," sagði Jesus við Manchester Evening News.
Athugasemdir
banner
banner