Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 17. febrúar 2018 16:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Ekkert stöðvar Bayern - Aron Jó byrjaði
Lewandowski gerði sigurmarkið.
Lewandowski gerði sigurmarkið.
Mynd: Getty Images
Aron Jó byrjaði í tapi Werder Bremen.
Aron Jó byrjaði í tapi Werder Bremen.
Mynd: Getty Images
Það stoppar ekkert Bayern München í þýsku úrvalsdeildinni! Wolfsburg komst nálægt því í dag en náði því ekki.

Wolfsburg fékk Bayern í heimsókn á Wolkswagen Arena í Wolfsburg og náði forystunni þegar Daniel Didavi skoraði eftir átta mínútur. Staðan var 1-0 fyrir Wolfsburg í hálfleik.

Þegar tíu mínútur voru búnar af seinni hálfleiknum fékk Bayern vítaspyrnu en Arjen Robben klikkaði á vítapunktinum.

Sandro Wagner, sem kom til Bayern í janúar frá Hoffenheim, jafnaði metin á 64. mínútu og fór svo af velli fyrir Robert Lewandowski sem hafði byrjað á bekknum í Wolfsburg.

Bayern fékk sína aðra vítaspyrnu í uppbótartímanum og úr henni skoraði áðurnefndur Lewandowski.

Sigur Bayern staðreynd og er liðið með 21 stigs forystu á Bayer Leverkusen á toppi deildarinnar. Bayern hefur unnið stanslaust í þýsku úrvalsdeildinni frá 2. desember.

Bayer Leverkusen er í öðru sæti deildarinnar eftir 2-1 sigur á Hamburger. Hinn eftirsótti Leon Bailey kom Leverkusen á bragðið áður en hinn bráðefnilegi Kai Havertz bætti við. Andre Hahn minnkaði muninn fyrir Hamburger sem komst ekki lengra.

Þá byrjaði Aron Jóhannsson í tapi Werder Bremen gegn Freiburg. Aron lék 74 mínútur í leiknum fyrir Werder sem er í 15. sæti.

Þá gerðu Köln og Hannover 1-1 jafntefli.

Koln 1 - 1 Hannover
1-0 Yuya Osako ('29 )
1-1 Niclas Fullkrug ('37 )

Freiburg 1 - 0 Werder
1-0 Nils Petersen ('24 , víti)
1-0 Janik Haberer ('88 , Misnotað víti)

Hamburger 1 - 2 Bayer
0-1 Leon Bailey ('40 )
0-2 Kai Havertz ('50 )
1-2 Andre Hahn ('70 )

Wolfsburg 1 - 2 Bayern
1-0 Daniel Didavi ('8 )
1-0 Arjen Robben ('55 , Misnotað víti)
1-1 Sandro Wagner ('64 )
1-2 Robert Lewandowski ('90 , víti)

Leikur Schalke og Hoffenheim hefst 17:30.
Athugasemdir
banner
banner
banner