Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 17. apríl 2015 20:54
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Mikilvægur sigur Boro á Norwich
Middlesbrough er hársbreidd frá því að koma sér upp í úrvalsdeild
Middlesbrough er hársbreidd frá því að koma sér upp í úrvalsdeild
Mynd: Getty Images
Norwich 0 - 1 Middlesbrough
0-1 Alexander Tettey ('8 , sjálfsmark)

Middlesbrough sigraði Norwich City með einu marki gegn engu í ensku fyrstu deildinni í kvöld en sigurmarkið kom í byrjun leiks.

Norski landsliðsmaðurinn, Alexander Tettey, varð fyrir því óláni að koma knettinum í eigið net þegar átta mínútur voru búnar af leiknum.

Það reyndist eina mark leiksins og lokatölur því 0-1. Middlesbrough er því komið á toppinn með 84 stig þegar tveir leikir eru eftir af deildinn en liðið freistar þess að fara beint upp í úrvalsdeild og losa sig við umspilsleikina.
Athugasemdir
banner
banner