Mario Balotelli hefur birt mynd af sér á Instagram þar sem hann er með nýfædddum syni sínum.
Balotelli og kærasta hans Clelia eignuðust son sem þau kalla Lion í síðasta mánuði.
Balotelli og kærasta hans Clelia eignuðust son sem þau kalla Lion í síðasta mánuði.
Ítalski sóknarmaðurinn er 27 ára en hann átti fyrir fjögurra ára dóttur sem heitir Pia en hann eignaðist hana með fyrrverandi kærustu sinni, Raffaella Fico.
Balotelli hefur leikið vel síðan hann gekk í raðir Nice fyrir síðasta tímabil. Hann skoraði 15 deildarmörk á síðasta tímabili og er kominn með fimm mörk í fimm fyrstu leikjunum á nýju tímabili.
Nice hefur þó ekki gengið að óskum og er í neðri helmingi frönsku deildarinnar.
Hér að neðan má sjá myndina af Balotelli og Lion.
Athugasemdir