Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 17. október 2017 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Salah: Þetta var frábær leikur
Mynd: Getty Images
„Þetta var frábær leikur, við stóðum okkur mjög vel," sagði Mohamed Salah eftir 7-0 sigur á Maribor í Meistaradeildinni í kvöld.

Salah skoraði tvö af mörkum Liverpool í leiknum, en Liverpool er með fimm stig eftir fyrstu þrjá leiki sína í Meistaradeildinni.

„Þetta voru gríðarlega mikilvæg úrslit fyrir okkur. Við verðum að halda áfram," sagði Salah enn fremur.

„Það mikilvægasta við þennan leik var það að við fengum góð úrslit. Ég er mjög ánægður, núna verðum við að stefna að því að ná í góð úrslit í ensku úrvalsdeildinni og halda áfram."

„Við höfum verið óheppnir í undanförnum leikjum, en við vissum það að við myndum að lokum fá góð úrslit."

Sjá einnig:
Stærsti útisigur Liverpool - Maribor tók metið af KR.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner