Francesco Totti, fyrrum leikmaður AS Roma á Ítalíu, telur að Cristiano Ronaldo sé betri en Lionel Messi.
Totti lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil eftir að hafa leikið allan ferilinn með Roma.
Hann er talinn einn af bestu leikmönnum allra tíma en hann hefur lagt sitt mat á stærstu umræðu knattspyrnunnar. Hvor er betri, Lionel Messi eða Cristiano Ronaldo?
Totti er á þeirri skoðun að Ronaldo hafi þar vinninginn. Messi og Neymar voru skrefi á eftir honum á síðasta tímabili.F
„Við erum að tala um þrjár knattspyrnugeimverur. Þegar uppi er staðið hefur samt Ronaldo vinninginn. Hann átti frábært tímabil og afrekaði að ná öllum sínum markmiðum," sagði Totti.
Athugasemdir