Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 17. desember 2017 15:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Bournemouth og Liverpool: Mane á bekknum
Mane er bekkjaður.
Mane er bekkjaður.
Mynd: Getty Images
Seinni leikur dagsins í enska boltanum þennan sunnudaginn er á milli Bournemouth og Liverpool.

Eddie Howe gerir fimm breytingar á byrjunarliði sínu sem mætti á Old Trafford í miðri viku. Jordon Ibe byrjar gegn sínum gömlu félögum og varnarmenn Liverpool þurfa að eiga við Jermain Defoe.

Hjá Liverpool eru fjórar breytingar. Simon Mignolet, Joe Gomez, Alex Oxlade-Chamberlain og Jordan Henderson koma inn í byrjunarliðið.

Athygli vekur að Sadio Mane er á meðal varamanna.

Fyrir leikinn er Liverpool í sjötta sæti með 31 stig á meðan Bournemouth hefur 16 stig í 16. sæti.

Hér að neðan eru byrjunarliðin.

Byrjunarlið Bournemouth: Begovic, Francis, Ake, Daniels, Smith, Surman, Pugh, L.Cook, Ibe, King, Defoe.
(Varamenn: Boruc, S.Cook, Gosling, Arter, Afobe, Stanislas, Fraser)

Byrjunarlið Liverpool: Mignolet, Gomez, Klavan, Lovren, Robertson, Wijnaldum, Oxlade-Chamberlain, Henderson, Coutinho, Salah, Firmino.
(Varamenn: Karius, Milner, Mane, Lallana, Ings, Solanke, Alexander-Arnold)





Athugasemdir
banner
banner