Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 17. desember 2017 15:43
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Sara Björk skoraði í stórsigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Köln 0 - 6 Wolfsburg
0-1 P. Harder ('50)
0-2 B. Peter ('53)
0-3 P. Harder ('57)
0-4 P. Harder ('69)
0-5 V. Bernauer ('72)
0-6 Sara Björk Gunnarsdóttir ('86)

Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn og skoraði í stórsigri Wolfsburg gegn Köln í þýska boltanum í dag.

Pernille Harder gerði þrennu fyrir Wolfsburg sem er á toppi deildarinnar með þriggja stiga forystu á FC Bayern.

Sara gerði síðasta mark leiksins og er Köln með sex stig eftir ellefu umferðir. Köln er búið að skora 4 mörk á tímabilinu og fá 43 á sig.

Þá lék Fanndís Friðriksdóttir klukkutíma í fyrsta sigri Marseille á tímabilinu sem kom gegn toppbaráttuliði PSG. Marseille er sem fyrr á botni frönsku deildarinnar, þremur stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner