Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 18. október 2017 10:16
Elvar Geir Magnússon
Football Manager fíkill ferðaðist frá Kína til Runcorn
Wenbin ásamt stjórnarformanni Runcorn.
Wenbin ásamt stjórnarformanni Runcorn.
Mynd: Twitter
Kínverjinn Huang Wenbin er gríðarlega mikill aðdáandi Football Manager tölvuleiksins og gerði hann góða hluti í Championship Manager 01/02 sem stjóri enska utandeildarliðsins Runcorn.

Wenbin náði í tölvuleiknum að koma Runcorn upp úr utandeildinni og alla leið í úrvalsdeildinni. Hann náði að lokka til sín leikmenn á borð við Steven Gerrard, David Beckham, Roy Keane og Ruud van Nistelrooy.

Fimmtán árum eftir ævintýri hans hefur hann loks látið draum sinn rætast með því að ferðast alla leið frá Kína til Runcorn og fékk hann höfðinglegar móttökur hjá enska félaginu.

Wenbin mætti með fjölskyldu sinni og fékk skoðunarferð frá stjórnarformanni félagsins auk þess sem hann fékk treyjur og annan varning fyrir krakkana sína.
Athugasemdir
banner
banner
banner