Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 20. október 2014 18:04
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið WBA og Man Utd: Falcao á bekknum
Falcao byrjar á bekknum.
Falcao byrjar á bekknum.
Mynd: Getty Images
Radamel Falcao byrjar á varamannabekknum hjá Manchester United þegar liðið heimsækir WBA í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19:00 í leik sem verður í beinni á Stöð 2 Sport 2.

Ander Herrera hefur jafnað sig af meiðslum og kemur aftir inn í liðið sem og þeir Phil Jones og Adnan Januzaj.

Michael Carrick er á bekknum í fyrsta skipti í langan tíma en hann hefur ekkert komið við sögu á tímabilinu vegna meiðsla.

Hjá WBA er Ben Foster meiddur á kálfa og því byrjar Boaz Myhill í markinu.

WBA: Myhill, Wisdom, Lescott, Dawson, Pocognoli, Gardner, Brunt, Morrison, Dorrans, Sessegnon, Berahino.
Varamenn: Daniels, Gamboa, McAuley, Mulumbu, Blanco, Ideye, Anichebe.
Manchester United: De Gea, Rafael, Jones, Rojo, Shaw, Blind, Herrera, Januzaj, Mata, Di Maria, van Persie.
Varamenn: Lindegaard, Smalling, Carrick, Fellaini, Fletcher, Young, Falcao
Athugasemdir
banner
banner
banner