Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 20. október 2016 09:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Shaw um hvað Pogba gerir fyrir United: Hann dansar!
Luke Shaw
Luke Shaw
Mynd: Getty Images
Luke Shaw hrósar Paul Pogba og segir nærveru hans í búningsklefanum hafa góð áhrif á liðið.

Pogba hefur verið gagnrýndur fyrir slappa byrjun hjá United á leiktíðinni en hann er dýrasti knattspyrnumaður allra tíma. Shaw er hins vegar sáttur við Frakann og segir hann einn besta miðjumann í heimi.

Shaw var spurður hvað Pogba kæmi með fyrir liðið.

„Hann dansar mikið í búningsklefanum," grínaðist Shaw. „Hann hjálpar til í búningsklefanum. Það hafa allir séð hann síðustu tvö ár og vita hvað hann er góður. Hann var valinn í úrvalsliðið í heiminum á síðasta ári og það er ástæða fyrir því."

„Hann er einn af bestu miðjumönnum heims. Hann er enn að aðlagast og því verður hann bara betri," sagði Shaw.
Athugasemdir
banner
banner