Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 20. desember 2014 18:55
Arnar Geir Halldórsson
Spánn: Alfreð spilaði í dramatísku jafntefli
Alfreð í leik með Sociedad
Alfreð í leik með Sociedad
Mynd: Getty Images
Levante 1 - 1 Real Sociedad
0-1 Sergio Canales ('48 )
1-1 Andreas Ivanschitz ('90 , víti)

Levante og Real Sociedad skildu jöfn í leik sem var að ljúka. Sergio Canales kom Sociedad yfir í upphafi seinni hálfleiks en Austurríkismaðurinn Andreas Ivanschitz jafnaði metin úr vítaspyrnu á lokaandartökum leiksins.

Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Sociedad en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn áður en hann var tekinn útaf á 80.mínútu. Alfreð nældi sér í gult spjald stuttu áður.

Levante og Real Sociedad fara því með jafnmörg stig í jólafríið.
Athugasemdir
banner
banner
banner