Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. apríl 2018 15:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Fullt af gulum spjöldum en engin mörk
Mynd: Getty Images
Watford 0 - 0 Crystal Palace

Leikur Watford og Crystal Palace, seinni leikurinn í ensku úrvalsdeildinni í dag var ekki eins skemmtilegur og fyrri leikurinn

Þessi leikur gaf ekki mikið fyrir utan fullt af gulum spjöldum.

Watford var sterkari aðilinn og átti fleiri skot en engin mörk voru skoruð og var niðurstaðan markalaust jafntefli.

Crystal Palace er í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, sex stigum frá fallsæti á meðan Watford er í 12. sæti, níu stigum frá fallsæti.

Klukkan 16:15 er bikarundanúrslitaleikur Manchester United og Tottenham að hefjast. Smelltu hér til að sjá byrjunarliðin
Athugasemdir
banner
banner
banner