Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 21. apríl 2018 13:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Shearer, Ronaldo, Suarez og Mohamed Salah
Salah þarf eitt mark í viðbót til þess að bæta markamet.
Salah þarf eitt mark í viðbót til þess að bæta markamet.
Mynd: Getty Images
Hversu geggjaður er Mohamed Salah í fótbolta?

Salah hefur verið hreint út sagt magnaður eftir að hann gekk í raðir Liverpool frá Roma síðasta sumar. Hann er kominn með 41 mark í öllum keppnum, þar af 31 í ensku úrvalsdeildinni.

Hann er með 31 mark í 33 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Það er stórkostleg tölfræði.

Salah skoraði sitt 31. deildarmark í dag í 2-2 jafntefli gegn West Brom en aðeins þrír aðrir leikmenn hafa náð þeim áfanga að skora 31 mark á 38 leikja tímabili í deild þeirra bestu á Englandi.

Hinir þrír eru Alan Shearer (1995/96), Cristiano Ronaldo (2007/08) og Luis Suarez (2013/14).

Ef Salah skorar eitt mark í viðbót, sem hann mun líklega gera, setur hann markamet.







Athugasemdir
banner
banner