Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. september 2014 16:59
Jón Stefán Jónsson
England: Lampard skoraði í jafntefli City og Chelsea
Frank Lampard
Frank Lampard
Mynd: Getty Images
Manchester City og Chelsea skyldu jöfn 1-1 í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Frank Lampard, sem er leikjahæsti leikmaðurinn í sögu Chelsea en leikur nú fyrir Man City, skoraði jöfnunarmark City nokkrum mínútum fyrir leikslok.

Heimamenn í City léku einum færri í tæpar 25 mínútur eftir að Mike Dean rak Pablo Zapaleta af velli með sitt annað gula spjald fyrir brot á Diego Costa.

Eftir spjaldið sótti Chelsea af nokkrum krafti og uppskar mark frá Andre Schurrle nokkrum mínútum síðar. Gestirnir slökuðu hins vegar of mikið á í lokin sem varð til þess að Lampard tryggði City dýrmætt stig.

Manchester City 1 - 1 Chelsea
0-1 Andre Schurrle ('71 )
1-1 Frank Lampard ('85 )

Rautt spjald:Pablo Zabaleta, Manchester City ('66)
Athugasemdir
banner
banner