Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 22. ágúst 2017 18:30
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Clucas í læknisskoðun hjá Swansea
Sam Clucas er á leið til Swansea
Sam Clucas er á leið til Swansea
Mynd: Getty Images
Hull City hafa staðfest að þeir hafa samþykkt tilboð frá Swansea í miðjumanninn Sam Clucas. Sky Sports greinir frá þessu nú undir kvöld en tilboðið er talið hljóða upp á 16.5 milljónir punda.

Þessi 26 ára enski miðjumaður hefur verið orðaður við Burnley og Swansea í sumar og hafði Hull áður hafnað tilboði frá Burnley í Clucas.

Swansea búast við því að Clucas verði orðinn leikmaður félagsins innan tveggja sólarhringa og er hann sagður vera á leið í læknisskoðun hjá félaginu nú í kvöld.

Clucas átti ágætis tímabil hjá Hull í ensku úrvalsdeildinni í fyrra en hann gat ekki komið í veg fyrir að liðið félli.

Hann kom til Hull frá Chesterfield árið 2015 fyrir 1.3 milljónir punda. Clucas lék 93 leiki fyrir Hull og skoraði í þeim níu mörk.
Athugasemdir
banner
banner