Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. september 2017 18:15
Elvar Geir Magnússon
Gleði lykillinn að velgengni Martial
Klukkan er Gleði hjá Martial.
Klukkan er Gleði hjá Martial.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, segir að gleðin sé lykillinn að því hversu vel Anthony Martial hefur spilað í upphafi tímabils.

Martial var gagnrýndur af Mourinho á síðasta tímabili en hann náði aðeins að skora átta mörk eftir að hafa skorað sautján á fyrsta tímabili sínu á Old Trafford.

Frakkinn er þegar kominn með fjögur á þessu tímabili. Mourinho segir að bætt viðhorf og bros á andliti hans sé lykillinn að velgengninni.

„Ég sé mikla bætingu hjá honum, skapinu sem hann er í. Maður sér það á andliti hans og líkamstjáningu. Ef ég ætti að nota eitt orð þá er það: Gleði," segir Mourinho.

„Hann er ánægður og leggur gríðarlega mikið á sig. Hann leggur sig allan fram, sama hvort hann sé í byrjunarliðinu eða spili tíu mínútur. Hann reynir að njóta og gefa af sér. Þegar viðhorfið er þetta er auðveldara að spila vel."

Manchester United mætir Southampton á útivelli á morgun.
Athugasemdir
banner
banner