Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 22. desember 2014 11:27
Magnús Már Einarsson
Ólafur Karl gerir nýjan samning við Stjörnuna
Ólafur Karl fagnar sigurmarkinu gegn FH.
Ólafur Karl fagnar sigurmarkinu gegn FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Karl Finsen hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Stjörnuna.

Ólafur Karl sló í gegn þegar Stjarnan varð Íslandsmeistari í sumar en hann varð þriðji markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar.

Í lokaumferðinni skoraði hann bæði mörk Stjörnunnar í 2-1 sigri á FH en sá sigur tryggði Garðbæingum titilinn.

,,Það gleður okkur að tilkynna að Ólafur Karl Finsen hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við Stjörnuna," sagði Stjarnan á Twitter í dag.

Sjá einnig:
Frá óreglu í Íslandsmeistaratitil á einu ári (Viðtal 9. október)
Athugasemdir
banner
banner