Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 23. mars 2017 17:01
Magnús Már Einarsson
Alfreð skoraði í leik með Augsburg
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alfreð Finnbogason skoraði mark Augsburg í 1-1 jafntefli liðsins gegn Greuther Fürth í dag. Um var að ræða æfingaleik sem var leikinn bakvið luktar dyr.

Alfreð skoraði mark Augsburg á 18. mínútu leiksins.

Þetta var fyrsti leikur Alfreðs síðan í október en þá fór hann af velli í leik Íslands og Tyrklands.

Alfreð hefur síðan þá verið að glíma við þrálát nárameiðsli en um er að ræða bólgur í lífbeini sem leiða niður í nárann.

Undanfarnar vikur hefur Alfreð verið að komast í gang á nýjan leik á æfingum og nú styttist í endurkomu hans í þýsku Bundesliguna.

Alfreð byrjaði undankeppni HM á því að skora í fyrstu þremur leikjum Íslands en hann verður fjarri góðu gamni gegn Kosóvó annað kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner