Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   þri 23. apríl 2024 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sagður ætla gera allt sem hann getur til að halda Willian
Mynd: EPA
Samningur Willian við Fulham rennur út í sumar. Brasilíumaðurinn er 35 ára kantmaður sem hefur byrjað 22 af 34 leikjum Fulham í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

Á The Athletic er fjallað um að Marco Silva, stjóri liðsins, ætli að gera allt sem hann getur til að halda Willian áfram hjá félaginu.

Willian kom frá Corinthians í heimalandinu haustið 2022 og hefur smollið vel inn í hlutina á Craven Cottage.

Willian er fyrrum landsliðsmaður Brasilíu, á að baki 70 leiki og í þeim skoraði hann 9 mörk. Hann er fyrrum leikmaður Shakhtar, Chelsea og Arsenal.

Hann hefur skorað 10 mörk í 65 leikjum í öllum keppnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner