Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 23. maí 2015 22:24
Elvar Geir Magnússon
Þórður og Albert framlengja við ÍA
Þórður Þorsteinn Þórðarson.
Þórður Þorsteinn Þórðarson.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Albert Hafsteinsson og Þórður Þorsteinn Þórðarson skrifuðu í gær undir nýja samninga við ÍA sem gilda til ársloka 2017.

„Báðir hafa þeir vaxið mikið sem leikmenn á undirbúningstímabilinu og unnið sér sæti í byrjunarliðinu á síðustu vikum," segir á heimasíðu ÍA.

„Það er því mikið ánægjuefni að hafa framlengt samninga þeirra um 2 ár og bindur félagið miklar vonir við þá í framtíðinni."

Þórður og Albert hafa báðir spilað fyrstu þrjá leiki ÍA í Pepsi-deildinni í sumar.

Þórður er sonur Þórðar Þórðarsonar fyrrum leikmanns og þjálfara ÍA en hann þjálfar í dag meistaraflokk kvenna hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner