Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 23. nóvember 2014 13:52
Elvar Geir Magnússon
Lífið í Madrid uppfyllir allar þarfir Bale fyrir utan eitt
Mynd: Getty Images
Gareth Bale hefur allt sem hann þarf í Madrid þar sem hann lifir ofurstjörnulífi sem leikmaður Real Madrid... fyrir utan eitt.

Ekki getur Bale kvartað yfir laununum og hann lifir lífi sem venjulegt fólk getur aðeins látið sig dreyma um.

En það er einn hlutur sem Bale saknar frá Bretlandi og það er eitthvað sem hann getur ekki nálgast á Spáni þrátt fyrir alla peningana og frægðina.

„Ég sakna Nando's, það eru litlu hlutirnir sem maður saknar. Við tókum með okkur enskt te hingað og súkkulaði. Ég get því miður ekki tekið Nando's með mér því miður," segir Bale sem vann Meistaradeildina með Real á síðasta tímabili.

Fyrir þá sem ekki þekkja er Nando's afar vinsæll kjúklingastaður á Bretlandseyjum.

Ef þú heimsækir Nando's einn daginn vill undirritaður mæla með tvöfaldri kjúklíngapítu með sterku sósunni, plús ananas.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner