Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. mars 2017 10:00
Magnús Már Einarsson
Koscielny vill að leikmenn létti pressunni af Wenger
Mynd: Getty Images
Laurent Koscielny, varnarmaður Arsenal, vill að leikmenn liðsins stígi upp og hjálpi til við að létta pressunni af Arsene Wenger stjóra liðsins.

Arsenal hefur tapað sex af síðustu níu leikjum og mikið hefur verið rætt um það hvort Wenger sé kominn á endastöð með liðið.

„Hann hefur verið mjög mikilvægur fyrir mig á ferlinum," sagði Koscielny.

„Hann gaf mér tækiæri hjá Arsenal og skapaði mig sem leikmann og manneskju."

„Staðan okkar er flókin en þetta er ekki bara á hans ábyrgð. Við þurfum að gera meira innan vallar."

Athugasemdir
banner
banner