Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. apríl 2015 17:15
Elvar Geir Magnússon
Hefur Rafael leikið sinn síðasta leik fyrir Man Utd?
Bakvörðurinn Rafael.
Bakvörðurinn Rafael.
Mynd: Getty Images
Rafael gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Manchester United en ljóst er að hann spilar ekki meira á þessu tímabili.

Varnarmaðurinn brasilíski rifbeinsbrotnaði í leik með U21-liði félagsins í vikunni.

Samningur Rafael rennur út á næsta ári og er búist við því að hann verði seldur í sumar.

United mætir Everton á sunnudag en auk Rafael varða Phil Jones, Marcos Rojo og Michael Carrick allir fjarri góðu gamni.

United er í þriðja sæti með 65 stig, átta stigum á undan Liverpool sem er í fimmta sæti en á leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner