Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 24. apríl 2018 10:47
Magnús Már Einarsson
Klopp vill spila eins og Man Utd gerði hjá Ferguson
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur líkt kraftinum í Liverpool við spilamennsku Manchester United undir stjórn Sir Alex Ferguson.

Liverpool mætir Roma í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld klukkan 18:45.

Í 8-liða úrslitunum skoraði liðið þrjú mörk á einungis nítján mínútum gegn Manchester City. Klopp segir þetta minna á United.

„Þetta er eins og hjá Alex Ferguson með Man United. Á ákveðnum tíma þá skoruðu þeir alltaf tvívegis?" sagði Klopp.

„Skora, skora? Það er möguleiki. Skora einu sinni og gera það aftur. Nota augnablikið í leiknum."

„Auðvitað ræðum við þetta og viljum gera þetta en þú verður að byrja á að skora.""

Athugasemdir
banner
banner
banner