Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 24. maí 2015 21:35
Magnús Már Einarsson
Elías Már skoraði fjögur fyrir varalið Valerenga
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Elías Már Ómarsson skoraði fjögur mörk fyrir varalið Valerenga í dag.

Varalið Valerenga spilar í norsku C-deildinni en liðið sigraði Harstad 5-1 á útivelli.

Elías Már var í miklu stuði í leiknum og skoraði fjórum sinnum.

Elías hefur ekki náð að festa sig í sessi í aðalliði Valerenga síðan hann kom til félagsins frá Keflavík í fyrra.

Hinn tvítugi Elías verður í hóp hjá aðalliði Valerenga á morgun þegar liðið mætir Sandefjord.
Athugasemdir
banner