Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 25. maí 2018 22:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Man Utd íhugar tilboð í Joao Cancelo
Joao Cancelo í leik með Inter.
Joao Cancelo í leik með Inter.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho ætlar sér að styrkja varnarlínuna hjá Manchester United í sumar en Mirror greindi frá því í dag að Manchester United hefði áhuga á bakverði Valencia.

Bakvörðurinn sem um ræðir heitir Joao Cancelo en hann er sem fyrr segir samningsbundinn Valencia á Spáni, hann lék hins vegar á láni hjá Inter á tímabilinu en þeir hafa forkaupsrétt á leikmanninum.

En Inter virðist ekki ætla að nýta sér þann möguleika og Manchester United er sagt vera að undirbúa tilboð í hægri bakvörðinn sem hljóðar upp á 30 milljónir punda.

Cancelo er ekki eini leikmaðurinn sem er orðaður við Manchester United þessa dagana því Brasilíumaðurinn Fred gæti einnig verið á leið til félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner