Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 25. júní 2016 16:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild: Jafnt hjá Aftureldingu og Gróttu - Magni vann í markaleik
Wentzel Steinarr R Kamban skoraði mark Aftureldingar
Wentzel Steinarr R Kamban skoraði mark Aftureldingar
Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla
Magni vann Vestra í markaleik
Magni vann Vestra í markaleik
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fjórum leikjum var að ljúka í 2. deild karla nú rétt í þessu.

Í Mosfellsbæ var toppslagur þegar Afturelding og Grótta mættust. Fyrir leikinn var Afturelding á toppnum, en Grótta var þremur stigum á eftir.

Afturelding var 1-0 yfir í hálfleik eftir mark frá Wentzel Steinarr R Kamban, en snemma í seinni hálfleiknum jafnaði Sigurvin Reynisson metin fyrir gestina.

Það urðu lokatölur í leiknum, 1-1, en Afturelding spilaði síðustu sex mínúturnar einum færri eftir að Einar Marteinsson fékk að líta rauða spjaldið. Það kom hins vegar ekki að sök og Afturelding er áfram á toppnum í deildinni.

Magni frá Grenivík vann sigur á Vestra í markaleik. Magni komst 2-0 yfir, en Vestri var ekki lengi að jafna það eftir að flautað var til leiks í seinni hálfleik.

Magnamenn létu það hins vegar ekki stoppa sig og settu þrjú mörk í andlitið á Vesta og lokatölur 5-2 í Grenivík.

Í öðrum leikjum var það svo að frétta að KV hafði betur gegn KF, 3-0 og Völsungur vann sinn fyrsta sigur í deildinni gegn Hetti á heimavelli.

Afturelding 1 - 1 Grótta
1-0 Wentzel Steinarr R Kamban (´35 )
1-1 Sigurvin Reynisson (´53 )
Rautt spjald: Einar Marteinsson, Afturelding (´84 )

Magni 5 - 2 Vestri
1-0 Victor Da Costa (´5 )
2-0 Lars Óli Jessen (´25 )
2-1 James Pucci (´50 )
2-2 Matthew Nigro (´53 )
3-2 Númi Kárason (´56 )
4-2 Lars Óli Jessen (´73 )
5-2 Marko Blagojevic (´78 )

KV 3 - 0 KF
1-0 Viktor Örn Guðmundsson (´1 )
2-0 Viktor Örn Guðmundsson (´53 )
3-0 Viðar Þór Sigurðsson (´60 )

Völsungur 2 - 1 Höttur
0-1 Friðrik Ingi Þráinsson (´24 )
1-1 Jóhann Þórhallsson (´38 )
2-1 Jóhann Þórhallsson (´45 )

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner