Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 26. apríl 2015 12:28
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ítalía: Atalanta bjargaði jafntefli á síðustu stundu gegn Empoli
German Denis jafnaði í blálokin.
German Denis jafnaði í blálokin.
Mynd: Getty Images
Atalanta 2 - 2 Empoli
0-1 Riccardo Saponara ('41 )
1-1 Alejandro Gomez ('43 )
1-2 Massimo Maccarone ('60 )
2-2 German Denis ('90 )

Atalanta og Empoli mættust í dag í Seria A á Ítalíu.

Bæði lið eru í baráttu á röngum enda deildarinnar en virðast þó ætla að halda sæti sínu í deildinni.

Gestirnir í Empoli komust yfir stuttu fyrir leikhlé með marki Riccardo Saponara, Alejandro Gomez náði þó að jafna tveimur mínútum síðar og var staðan 1-1 í leikhléi.

Gestirnir komust aftur yfir eftir klukkutíma leik er Massimo Maccarone skoraði, allt leit út fyrir að það yrði sigurmark leiksins en German Denis tókst að jafna í blálokin og þar við sat.

Liðin eru ennþá í 16. og 17. sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner